Samband næst við 112 þótt ekki sé inneign á símakortinu og líka þótt ekkert símakort sé í símanum.Hægt er að hringja úr farsímum og úr símtækjum í almenna símkerfinu.
Ef þú hefur áhyggjur af aðstæðum barns þá er gott að hafa í huga
Talaðu við einhvern sem þú treystir og getur leiðbeint þér
Það eru aðilar sem geta hjálpað þér, oft gott að treysta tilfinningunni og bera aðstæður undir aðra.
Með því að segja frá geturðu unnið úr sársaukanum og orðið sterkari en áður
Ábyrgðin er aldrei þín
Ofbeldið er aldrei þér að kenna
Til að ofbeldið haldi ekki áfram þarftu að segja einhverjum frá